Hola
13.07.2007 21:29:56 / Caaeflor

Úpps

 

Halló halló,

Jahérna hér, það er nú aðeins meira en mánuður síðan ég ritaði hér síðast. Ég gleymi, inn á milli hvernig á að nota þetta blogg en það rifjast nú alltaf upp að lokum. Ég hef þá líklega eitthvað að segja núna eftir allan þennan tíma. Hvar á ég að byrja?

    Í sumar hef ég verið að vinna í Heilsuakademíunni í Egilshöll bæði í afgreiðslunni og á leikjanámskeiðum. Það er rosa fínt, fæ góða reynslu áður en ég byrja í ÍKÍ í haust á Laugarvatni. Já ætli það séu ekki nýustu fréttirnar, ég er að fara aftur í Kennó, samt á aðra braut. Ég komst bæði inn í íþróttafræðina á Laugarvatni og í HR en ég ákvað að láta gamlan draum rætast og fara á Laugarvatn. Ég flyt þangað í haust ásamt litlu ormunum mínum tveim. Þau fara í leik- og grunnskólann á Laugarvatni. Vonandi eigum við öll eftir að aðlagast vel og njóta okkar. 

Um Jónsmessu gekk ég Fimmvörðuhálsinn og er á leið þangað aftur í fyrramálið klukkan sex, takk fyrir með vinnufélögunum og viðskiptavinum. Þetta er rosa gaman, við gistum í Þórsmörk á laugardagsnóttina, grillum og djömmum. Förum svo heim á sunnudaginn. Jibbí íííí.

Jæja vonandi hafa það allir gott í blíðunni!!!!! Hafið þið það gott og verið góð hvort við annað! Knús og kiss til allra sem lesa síðuna. Veit nú ekki hvort að það séu margir, nennir engin að kíkja lengur.:^) 


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 23:19:35 / Caaeflor

Ekki alveg mánuður!

Vhá hvað ég er dugleg, ekki mánuður liðinn síðan ég bloggaði síðast! Er ég ekki dugleg Lóa mín :) Hi hi hi. Vonandi hafa það allir gott!!!
Ég hef það alveg geggjað, vonandi komin á rétta braut með námið, loksins......Er að undirbúa mig í að komast inn í íþróttafræðina í HR í samstarfi við íþróttaakademíuna í Keflavík. Er núna í starfskynningu í heilsuakademíuni, fylgist aðalega með þjálfun barna. Rosalega gaman!!! Þessa helgi sendi ég svo börnin í sveitina til mömmu og pabba og Carlos í vinnuna. En ég skellti mér á þjálfaranámskeið ÍSÍ. Fyrsti dagurinn var rosalega skemmtilegur. eins og ég segi held ég sé komin á rétta hillu núna.
Frænka mín frá Frakklandi var að koma til Íslands í dag og ætlar að kynna sér lífið og vinnunamarkaðinn á Íslandi. Það er frábært að fá hana, hún er jafnaldra mín og við vorum mjög nánar þegar við vorum litlar en sambandið hefur ekki verið eins náið síðustu ár. Erum ekki alveg á sama stað í lífinu, ég tók það verkefni að mér að verða móðir á meðan að hún einbeitti sér að náminu! Verður gaman að endurnýja samband okkar.
    Krakkarnir hressir og kátir, stækka bara og stækka. Það sýnir bara að maður sjálfur eldist og eldist, í huganum er maður alltaf jafn ungur!!!!!
Jæja dúllurnar mínar, hafið það gott. Þar til næst, knús, kossar, ást og friður

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 19:18:17 / Caaeflor

Jæja mánuður liðinn, hi hi hi!

Kominn tími til að skrifa, reyna að skrifa mánaðarlega :P. Vonandi hafa allir haft það gott um hátíðarnar, legið í leti, borðað á sig gat, átt góðar stundir með fjölskyldu og vinum.......Við höfðum það voða gott í sveitinni, alltaf gott að koma heim! Nú er rútínan komin af stað aftur, börnin í leikskólanum, Carlos í vinnunni og ég að hangsa, hi hi hi. Gott ekki satt, stundum verður maður að vera sjálfselskur og hugsa svolítið um sjálfan sig!!! Eru þið ekki sammála? Stefnan hjá mér núna er að byrja í tvem nýjum fögum í HÍ og klára þau:!::!::!: Fara svo í HR næsta haust í íþróttafræðina og vonandi er ég þá búin að finna mína hillu:^) Ég er byrjuð aftur í herþjálfun eftir handleggsbrot, það er rosalega gaman og ég mæli með því!!!!!
Skrifa meira seinna, í næsta mánuði ;) Ég er svo hugmyndasnauð og tölvur eru rétt í þessu að verða vinir mínir. Er farin að átta mig á því að þær eru ekki alslæmar:D
Knús og kossar til ykkar allra. Farið vel með ykkur og hafið það gott.
P.S: Gaman að sjá að fólk kíkir enn á síðuna mína, takk takk fyrir að sýna mér stuðning!!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 19:14:15 / Caaeflor

Long time no write again!

Jæja ætli það sé ekki nógu langt um liðið síðan ég bloggaði síðast. ég veit bara aldrei hvað ég á að segja......Hitti frænku mína í Kringlunni í vikunni og hún nefndi það nú við mig hvort ég ætlaði ekki að fara að blogga á næstunni, hi hi hi.
Er búin að vera í jólaundirbúningi á fullu, skreyta, kaupa gjafir og allt þetta hefðbundna. Það er svo erfitt að kaupa jólagjafir, veit ekki hvað á að gefa fólki sem á allt. En jæja maður finnur alltaf eitthvað að lokum.
Annars gengur lífið sinn vanagang..........Systir mín og kærasti hennar eyða jólunum í Suður-Afríku, tvær góðar vinkonur mínar halda jólin í Asíu, mamma er nýkomin frá Afríku, við fjölskyldan verðum í sveitinni.
Veit nú ekki hvort margir lesi þetta blogg, allir hættir að búast við eitthverju á þessari síðu. En þeir sem lesa, óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls nýss árs. Megi nýja árið vera ykkur öllum gleðilegt og gæfuríkt!!!!!!! Knús og kossar

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 19:22:00 / Caaeflor

Mánuður liðinn!!!

Úpposí, tíminn líður svo hratt að maður nær ekki að snúa sér í hring
áður en hann líður. Ég sem ætlaði að gera svo margt á meðan að Carlos og börnin væru í Hondúras en nú eru þau bara að koma á miðvikudag.....iss iss iss ég sem var búin að lofa að heimsækja mínar kæru vinkonur í Kennó, en jæja það er enn dagurinn á morgun og mánudagur og þriðjudagur. Hmmm lofa samt ekki neinu. Hef verið mikið í íþróttum þennan mánuðinn, klifra, herþjálfun, sund og annað, mæli með þessu öllu. Held ég sé að fara að skipta aftur um námsvetfang, ekki láta ykkur koma það á óvart, hi hi hi. Ætla að reyna að komast í íþróttafræðina í HR í haust. Búið að vera draumur minn síðan ég var lítil, veit ekki alveg afhverju ég byrjaði ekki strax á því. En jæja það er svolítið erfitt að finna sína hillu í þessu blessaða lífi. Knús og kiss til ykkar allra og farið vel með ykkur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 23:58:52 / Caaeflor

Hæ hæ

Halló allir,
Jæja nú er ég alein í kotinu, Carlos og krakkarnar komin til Hondúras. Þau eru í 30 stiga hita og tína appelsínur af trjánum og borða með bestu list. Hí hí hí. Ég er búin að fara bíó tvisvar, er að fara tvisvar sinnum í leikhús á næstunni. Gaman, gaman, einnig er ég búin að skrá mig í herþjálfun, hí hí hí veit ekki hvort ég gefist upp. Mér leiðist ekkert, sakna þeirra samt mikið, mikið.......Knús og kiss til allra

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 00:18:46 / Caaeflor

Skrýtinn dagur í dag

Dagurinn byrjaði ágætlega, fór í skólann. Þegar skólinn var búinn hringdi Carlos í mig og spurði hvort ég gæti keyrt einn af starfamönnum okkar á slysó. Hann sneri sig á ökla í gær. Það var ekkert mál. Svo hringdi góð vinkona mín og sagði mér að kona sem ég hef verið að hjálpa eins vel og ég get væri að baktala mig og væri ekki góð persóna. Vei ég varð bálreið, hefur einhver séð mig bálreiða? :evil: ég er það nefnilega ekki oft!!! En versta sem ég frétti í dag er að móðir bestu vinkonu minnar dó í dag, blessuð sé mynning hennar. Ég vona að Guð passi hana vel og að hann styrki hennar nánustu í sorginni. Elsku vinkonna, enn og aftur ég samhryggist innilega. Hugsum til ykkar allra, knús frá mér og mínum.       

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 09:42:04 / Caaeflor

Hæ again

Jæja fyrst ég er byrjuð í skólanum er ég meira í tölvunni og blogga því aðeins meira, held ég, það á reyndar eftir að koma í ljós 8| Nú er ein vika þangað til litlu krílin mín fari í langferð með pabba sínum....Verð að vera dugleg að finna mér eitthvað að gera, eruð þið með hugmyndir? Aníta systir og Klemmi eru komin á áfangastað, í óbyggðir Suður-Afríku. Rosa gaman hjá þeim og allt gengur vel í sólinni sem fer öfugan hring....hihihi. Annars er lítið að frétta, nema að ég er ekki komin í skólagírin og er ekki alveg með. Skila verkefnum með hálfum huga o.s.frv. En það er margt annað í lífinu sem er mikilvægara finnst mér. Þótt að nám sé einnig mikilvægt, ér er bara ekki þessi skólatípa!!!! Vonandi gengur allt sem best hjá öllum mínum kæru vinum og ættingjum. Ekki láta ykkur bregða ef ég byrtist einhverntímann í október. Ég ætla reyndar að drífa mig í herþjálfun......Mig vantar agann!! Knús til ykkar allra

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 11:19:35 / Caaeflor

Er alveg týnd!!!

Datt í hug að skrifa aðeins í dag, svona hinsegin, veit ekki hvort einhver lesi það. Það býst engin við því að ég skrifi lengur.
Það eru svolítið skrýtnar tilfinningar hjá mér núna, litla systir mín var að fara til Suður-Afríku ásamt kærasta sínum í um 5 mánuði. Svo eru maðurinn og börnin mín að fara til Hondúras þann 3.okt. og verða í mánuð, til 31.okt. Ég hef aldrei verið svona lengi í burtu frá þeim, þetta verður skrýtið. Ég verð að finna mér fullt að gera svo að ég fari ekki undir sæng að vola....Kannski verður þetta tækifæri til að hugsa um skólann, ræktina og heimsóknir til góðra vina og ættingja....
Vonandi hafið þið það öll sem best og allt gangi vel í ykkar lífi!!!!
Knús og kossar Emilía

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 20:08:57 / Caaeflor

Helló

Það er ekki í lagi með mig, það líður svo langt á milli þess sem ég skrifa að ég kann ekki lengur á þetta!!! Í dag fór ég í heimsókn til Rögnu Stínu úr kennó að reyna að sníkja af henni íbúð með vinskapnum. Veit ekki enn hvort það hafi tekist!!!:lol::lol: Í gær talaði ég við Eygló á msn, það var rosa gaman að heyra og hitta stelpurnar. Það væri gaman að sjá ykkur öll á leikskólabraut á öðru ári, ég sakna ykkar. Þið látið mig kannski vita ef það verður partý, fæ að vera boðflenna!!!!:$ Vonandi gekk ykkur öllum vel á síðustu önn og að allt gangi vel hjá ykkur áfram.. Knús Emilía
P.S: veit nú ekki hversu margir lesa þetta, það eru örugglega allir hættir að treysta á að ég skrifi einhverntímann!!!:^)

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 18:58:49 / Caaeflor

loksins loksins

Jæja nú er ég loksins sest við tölvuna, það gerist ekki oft eftir að ég hætti löngu skólagöngunni minni, ha ha ha. Ég hugga mig við það að ég ætla að byrja aftur í skóla í haust bara á öðru sviði sem vonandi hentar mér betur. Ég held ég slái öll met í bloggi, eruð þið ekki sammála því? :P
 Það er svosem ekkert að frétta, veit ekkert hvað ég á að gera. Er frekar ráðavilt sem stendur, byrjaði að vinna aftur á leikskólanum Múlaborg eftir að ég hætti í skólanum til þess að gá hvort einhver neisti væri eftir og einhver löngun við að vinna við þetta. Það gerðist ekki, er nú hætt aftur og vinn fyrir fyrirtækið okkar hjónakornanna. Það er fínt, núna hef ég svo líka meiri tíma fyrir sjálfa mig, þvílík eigingirni!!!!! Get farið að sprikkla og svona. Krakkarnir fá nú líka sinn tíma og unnustinn kannski svolítið brot en ég held að ég hafi farið oftar á djammið síðustu tvær vikur en ég hef gert síðustu fimm árin. Fór heim í sveitina, skildi manninn eftir að vinna og hitta gamla og góða vini síðan í barnaskóla og djammaði feitt..............
 Ég sakna samt bekkjafélaganna úr kennó! Þetta er svo góður hópur, megi þau lengi lifa, húrra húrra húrra. Ég fékk samt smá huggun þegar María kom til okkar á Múlaborg. Það er gaman að hafa hana og fá að heyra fréttir af hinum leikskólanemunum. 
                                Jæja kæru vinir sjáumst aftur á blogginu eftir nokkra mánuði!!!
Ekki búast við of miklu........ Knús Emilía


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 17:09:22 / Caaeflor

Glæsilegt!

Vá það er svo langt síðan að ég skrifaði síðast að ég mundi næstum ekki hvert ég átti að fara til að geta skrifað í dagbókina mína. Ferlegt að halda sér ekki í þjálfun!
    Þurfti að fá útrás, allt og mikið af hugsunum sem ég vildi ekki trufla neinn með svo að ég ákvað að skrifa það í dagbókina mína. Þannig er að ég er að lesa á fullu fyrir prófin en næ ekki að einbeita mér, efnið fer inn upp eitt eyra og um leið út um hitt. Mamma ætlaði að vera með börnin mín tvö á meðan á prófunum stæði en það gengur ekki vegna þess að hún fékk í bakið og er búin að vera frá í þrjár vikur og ekki bætti úr skák að hún fékk blöðrubólgu um helgina. Bróðir minn kæri er að fara í aðgerð á höfði, til að loka gatinu sem hann fékk á höfuðið í slysinu í september. Karlinn minn er að fara yfirum í vinnunni o.s.frv. Veit ekki alveg afhverju ég er að vorkenna mér, það er ekki ég sem á bágt heldur mínir nánustu. Einnig er margt fólk í heiminum sem er enn verr sett, þannig að ég fæ samviskubit á að vera að kvarta svona þegar aðrir kvarta ekki neitt þótt þeir séu að svelta eða með ólæknandi sjúkdóma. Vá hvað ég er orðinn svartsýn og neikvæð verð að hætta því og reyna að hugsa um hvað ég á gott. Vera jákvæð og bjartsýn er það ekki málið. Knús og bless

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 11:34:31 / Caaeflor

Mætt aftur

Jæja mér finnst að það sé komin næginlega langur tími frá því ég skrifaði síðast svo að ég ætla að reyna að pára eitthvað niður. Er stödd í skólanum og ætti að vera að læra eitthvað fróðlegt en nenni því ekki. Sem er ekki gott af því að það er nóg eftir af verkefnum til að skila fyrir prófin en hva þetta reddast. Dagurinn í gær var eins og allir aðrir dagar hjá mér, fara með börnin mín tvö í leikskólann, fara sjálf í minn leikskóla og læra eitthvað skynsamlegt t.d. Inngangur að uppeldisvísindum!!!! Eftir skóla fór ég að versla í matinn og þaðan lá leið mín að ná í börnin. Þau skemmtu sér örugglega betur en ég í skólanum sínum samt er alltaf gaman þegar litla dúllan mín hleypur í fangið á mér og öskrar af gleði við að sjá mig. Eins og þið sjáið eru dagarnir mínir mjög spennandi. Auðvitað jafnast ekkert á við það að vera umkringdur börnunum sínum. Knúsa ykkur öll!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 21:55:52 / Caaeflor

loksins að prufa!!!!

Er voðalega óörugg, var að reyna að senda msn en það tókst ekki betur en það að msnið mitt datt út. Hjálp Tóta!!!
    Lenti samt í skrítnu atviki í dag, símanúmer systur minnar er skráð á mig. Hún fékk sms úr Símanum á netinu sem átti að vera til mín frá vini mínum. Hún sendi það til mín, ég voðalega ánægð og sendi honum til baka en hann sagðist ekki hafa sent mér neitt. Við höfum ekki talast við í svolítinn tíma og mér fannst því gaman að heyra í honum en gleðin hvarf fljótt þegar hann sagðist ekki muna eftir að hafa sent mér skilaboð. Ég varð eins og skítur, mjög óþæginlegt. Sorry Erna, ég byrjaði á því að senda fyrsta smsið til hans til þín. Óhappa dagur greinilega hjá mér í dag, allt í lagi meðan hún er bara lítil og sæt, óheppnin sko!!
    Börnin farin að sofa, nenni ekki að vaska upp, fer líklega að glápa á sjónvarpið fyrst ég get ekki bjargað heiminum, ha Adda!!!!
    Jæja þetta er orðið ágætt fyrir fyrsta skiptið finnst ykkur það ekki?.Æ já takk fyrir kveðjuna Jóhanna mín. Enginn annar hafði fyrir því að bjóða mig velkomna í grúbbuna, skammist ykkar bara, þótt ég sé lítil þá er ég ekki það lítil að það sé ekki tekið eftir mér.:lol::lol::P:P

» 5 hafa sagt sína skoðun